Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 03. mars 2026 18:41
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Hákon aftur á bekkinn
Mynd: EPA
Mynd: Burnley
Mynd: Sunderland
Mynd: EPA
Það hefjast þrír leikir á sama tíma í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þar sem Hákon Rafn Valdimarsson sest aftur á varamannabekkinn hjá Brentford

Liðsfélagar hans heimsækja Bournemouth í spennandi slag í efri hluta deildarinnar. Þar eru fjögur stig sem skilja liðin að í baráttu um evrópusæti.

Keith Andrews gerir þrjár breytingar á liði Brentford sem hafði betur eftir skemmtilegan sjö marka leik gegn fallbaráttuliði Burnley um helgina. Caoimhin Kelleher tekur sér aftur stöðu á milli stanganna fyrir Hákon Rafn og þá koma reynsluboltarnir Nathan Collins og Jordan Henderson einnig inn í byrjunarliðið fyrir Kristoffer Ajer og Yehor Yarmolyuk.

Andoni Iraola gerir aðeins eina breytingu á liði Bournemouth sem gerði jafntefli við Sunderland um helgina. Ryan Christie kemur inn fyrir David Brooks.

Everton tekur á móti Burnley og breytir David Moyes engu í byrjunarliðinu eftir frábæran sigur í Newcastle um helgina. Á sama tíma gerir Scott Parker fjórar breytingar á liði Burnley frá tapinu fjöruga gegn Brentford.

Zian Flemming, sem hefur skorað 6 af 17 útivallarmörkum Burnley á tímabilinu og skoraði í síðustu tveimur leikjum, er fjarverandi vegna meiðsla. Þá detta Jacob Bruun Larsen, James Ward-Prowse og Josh Laurent allir niður á varamannabekkinn.

Kyle Walker, Lesley Ugochukwu, Florentino Luís og Lyle Foster stíga inn í byrjunarliðið í þeirra stað.

Að lokum mætast Leeds United og Sunderland í afar spennandi nýliðaslag og stillir Daniel Farke sama liði upp og átti frábæran fyrri hálfleik gegn Manchester City um helgina, þrátt fyrir smávægileg meðisli sem varnarmennirnir James Justin og Jaka Bijol hlutu gegn City.

Sunderland gerir hins vegar þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Bournemouth þar sem fyrirliðinn Granit Xhaka er tæpur og sest á bekkinn og er Robin Roefs markvörður ekki með vegna meiðsla. Þá sest Chemsdine Talbi á bekkinn.

Luke O'Nien, Nilson Angulo og Melker Ellborg koma inn í byrjunarliðið.

Bournemouth: Petrovic, Truffert, Senesi, Scott, Evanilson, Christie, Adams, Tavernier, Jimenez, Hill, Rayan.
Varamenn: Mandas, Brooks, Smith, Diakite, Adli, Kroupi, Enes Unal, Toth, Milosavljevic.

Brentford: Kelleher, Kayode, Van den Berg, Collins, Henry, Damsgaard, Henderson, Jensen, Ouattara, Thiago, Schade.
Varamenn: Valdimarsson, Pinnock, Yarmoliuk, Ajer, Lewis-Potter, Donovan, Furo, Bentt, Shield.



Everton: Pickford, O'Brien, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Gueye, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.
Varamenn: Travers, Patterson, Keane, Barry, George, Dibling, Rohl, Iroegbunam, Armstrong.

Burnley: Dubravka, Walker, Pires, Worrall, Esteve, Pires, Ugochukwu, Florentino, Anthony, Hannibal, Foster.
Varamenn: Weiss, Hartman, Bruun Larsen, Tchouana, Ekdal, Ward-Prowse, Laurent, Barnes, McMahon-Brown



Leeds:Darlow, Bogle, Justin, Rodon, Struijk, Gudmundsson, Stach, Ampadu, Gruev, Aaronson, Calvert-Lewin.
Varamenn: Perri, Bornauw, Bijol, Longstaff, Tanaka, James, Gnonto, Nmecha, Piroe.

Sunderland: Ellborg; Geertruida, Ballard, Alderete, Hume; O'Nien, Sadiki, Diarra; Angulo, Le Fee; Mayenda.
Varamenn: Moore, J Jones, Xhaka, Rigg, H Jones, Aleksic, Talbi, Traore, Isidor.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner