Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
banner
   þri 03. mars 2026 19:36
Ívan Guðjón Baldursson
Greina frá kaupskyldu fyrir Guessand
Guessand hefur stimplað sig vel inn á Selhurst Park.
Guessand hefur stimplað sig vel inn á Selhurst Park.
Mynd: EPA
Evann Guessand skipti frá Aston Villa til Crystal Palace í janúarglugganum á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu.

Þessi 24 ára sóknarleikmaður hefur farið vel af stað hjá nýju félagi og hefur komið með beinum hætti að þremur mörkum í sex leikjum í öllum keppnum.

Sky Sports greinir frá því að árangurstengda kaupskyldan, sem hljóðar upp á 28 milljónir punda, virkjast þegar Guessand hefur komið að átta mörkum með beinum hætti. Hann er því fimm mörkum/stoðsendingum frá því að vera keyptur til Palace.

Þjálfarateymi Palace er hrifið af leikmanninum og bendir allt til þess að hann verði keyptur fyrir næstu leiktíð.

Guessand er búinn að samþykkja fjögurra ára samning við Palace ef gengið verður frá félagaskiptunum.
Athugasemdir
banner
banner