Leiknir R. 2 - 1 FH
1-0 Axel Freyr Harðarson ('12)
1-1 Gils Gíslason ('45+1)
2-1 Jóhann Kanfory Tjörvason ('77)
1-0 Axel Freyr Harðarson ('12)
1-1 Gils Gíslason ('45+1)
2-1 Jóhann Kanfory Tjörvason ('77)
Leiknir tók á móti FH í eina leik kvöldsins í A-deild Lengjubikars karla og úr varð afar spennandi slagur.
Axel Freyr Harðarson náði forystunni fyrir heimamenn í Breiðholti snemma leiks en Gils Gíslason jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Í síðari hálfleik var það Jóhann Kanfory Tjörvason sem réði úrslitum með marki sínu á 77. mínútu, svo lokatölur urðu 2-1.
Leiknir endar Lengjubikarinn með sex stig eftir fimm umferðir, eftir sigra gegn Breiðabliki og FH í lokaumferðum riðlakeppninnar.
FH endar með fjögur stig.
Athugasemdir


