Davíð Ingvarsson er búinn að framlengja samning sinn við Breiðablik en hann skoraði tvö mörk í átta deildarleikjum í fyrra, samkvæmt vef KSÍ.
Davíð er fæddur 1999 og uppalinn hjá FH en hefur verið hjá Blikum í meira en áratug eftir félagaskipti sín árið 2015, þegar hann var í þriðja flokki.
Davíð hefur í tvígang orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki auk þess að hafa leikið fjölda Evrópuleikja, en í heildina er hann með 12 mörk í 211 leikjum fyrir Blika.
„Til hamingju með nýja samninginn, Davíð!" segir meðal annars í tilkynningu frá Breiðabliki.
Athugasemdir



