Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 22:37
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski bikarinn: Como sýndi yfirburði gegn Inter
Mynd: EPA
Como 0 - 0 Inter

Como og Inter áttust við í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítalska bikarsins og var leikið við Como-vatn.

Heimamenn spiluðu mjög góðan og agaðan leik og voru sterkari aðilinn, en tókst þó ekki að skora í markalausu jafntefli. Gestirnir í liði Inter mættu til leiks með hálfgert varalið til að hvíla sína bestu menn fyrir stærsta leik ítalska deildartímabilsins sem fer fram næstu helgi, þegar Inter spilar við nágranna sína í AC Milan í titilbaráttuslag.

Como fékk nokkur hálffæri í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora og kom besta færi leiksins svo í síðari hálfleik, en bakvörðurinn efnilegi Álex Valle klúðraði á ótrúlegan hátt þegar hann hæfði ekki rammann af þriggja metra færi eftir lága fyrirgjöf frá Ivan Smolcic.

Síðari hálfleikurinn var afar bragðdaufur eftir þetta. Cristian Chivu þjálfari Inter skipti stórum byssum á borð Marcus Thuram og Denzel Dumfries inn af bekknum en það var lítið sem ekkert af færum. Niðurstaðan markalaust jafntefli.

Liðin mætast aftur í seinni viðureigninni í seinni hluta apríl. Liðin eru að keppast um að mæta annað hvort Lazio eða Atalanta í úrslitaleiknum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner