Patrick Pedersen er eftir gærdaginn sex mörkum frá því að jafna markamet Tryggva Guðmundssonar í efstu deild. Danski framherjinn skoraði fyrra mark Vals í sigri liðsins gegn Fram í gær.
Hann er kominn með 125 mörk í efstu deild, Tryggvi skoraði á sínum ferli 131 mark. Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var annan leikinn í röð spurður út í Patrick í viðtali eftir leik.
Hann er kominn með 125 mörk í efstu deild, Tryggvi skoraði á sínum ferli 131 mark. Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var annan leikinn í röð spurður út í Patrick í viðtali eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 Fram
„Það er heiður að þjálfa þennan strák, frábær fótboltamaður og frábær karakter. Hann er búinn að vera í mörg ár hjá Val, hungrið hefur aldrei minnkað, verður bara meira með hverju árinu," sagði Túfa.
„Hann vill alltaf gera vel fyrir klúbbinn, liðsfélagana og þjálfarana. Þú vilt hafa svona gæja í liðinu hjá þér."
Valur er núna tveimur stigum frá toppsæti deildarinnar og spila í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir landsleikjahléið.
Athugasemdir