Klukkan 18:00 tekur ísenska kvennalandsliðið á móti því franska í lokaleik riðlakeppninnar í Þjóðadeildinni. Spilað er í fyrsta sinn á nýju hybrid grasi á Laugardalsvelli.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, hefur valið byrjunarliðið sitt og gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Noreg á föstudag.
Guðný Árnadóttir kemur inn fyrir Natöshu, Agla María kemur inn fyrir Söndru Maríu og Dagný kemur inn á miðjuna fyrir Hildi Antons. Sveindís Jane spilar í dag sinn 50. landsleik. Agla María byrjar sinn fyrsta landsleik síðan í desember 2023.

Lestu um leikinn: Ísland 0 - 2 Frakkland
Byrjunarliðið
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
10. Dagný Brynjarsdóttir
14. Hlín Eiríksdóttir
17. Agla María Albertsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
20. Guðný Árnadóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Athugasemdir