Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 18:36
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Fernandes: Amorim bað mig um að vera áfram
Bruno Fernandes hafnaði risasamningi frá Al-Hilal til að vera áfram í Manchester.
Bruno Fernandes hafnaði risasamningi frá Al-Hilal til að vera áfram í Manchester.
Mynd: EPA
Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United er búinn að staðfesta að hann hefur hafnað samningstilboði frá Al-Hilal.

Fernandes hafnaði því að fá um það bil fimm sinnum hærri útborguð laun með því að segja nei við Al-Hilal. Samkvæmt fjölmiðlum á Englandi hefði hann fengið 700 þúsund pund í vikulaun í Sádi-Arabíu, skattfrjálst, auk þess að fá veglegan undirritunarbónus við félagaskiptin.

Rúben Amorim, þjálfari Man Utd og samlandi Fernandes, hjálpaði honum að taka ákvörðunina.

„Forsetinn hringdi í mig en ég hafnaði tilboðinu," sagði Fernandes um Al-Hilal.

„Ég talaði við Amorim og hann bað mig um að vera áfram hjá félaginu. Manchester United vildi ekki selja mig og þarf ekki peninginn, en ef ég vildi fara þá hefði ég mátt gera það."
Athugasemdir
banner
banner