Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Einkunnir Íslands: Skaraði fram úr í þessu verkefni
Icelandair
EM KVK 2025
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland tapaði 0-2 gegn Frakklandi í síðasta heimaleik sínum fyrir EM í sumar. Stelpurnar enda í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fara í umspil.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir Fótbolta.net úr leiknum.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 8
Tók eina ótrúlega vörslu í fyrri hálfleik sem var í raun bara í heimsklassa. Gerði sitt mjög vel í leiknum og er annan leikinn í röð besti leikmaður Íslands. Hún verður í markinu á EM, það er klárt.

Guðný Árnadóttir - 5
Lenti í smá brasi varnarlega í þessum leik og var sofandi í fyrra markinu, þó það hafi verið rangstaða.

Glódís Perla Viggósdóttir - 6
Átti heilt yfir góðan leik og var lengst af mjög góð, en hún horfir væntanlega á mörkin og er ósátt við sjálfa sig.

Ingibjörg Sigurðardóttir - 6
Var mjög fín lengst af við hliðina á Glódísi. Var í smá brasi með að koma boltanum frá sér í seinni hálfleik þegar vindurinn kom í andlitið á okkur.

Guðrún Arnardóttir - 5
Lenti í smá brasi í fyrri hálfleiknum en kom vel inn í seinni hálfleikinn. Var á eftir í fyrra markinu.

Dagný Brynjarsdóttir - 5
Var fín í fyrri hálfleik en það dró mikið af henni í seinni hálfleik.

Alexandra Jóhannsdóttir - 6
Skilaði sínu nokkuð vel frá sér áður en hún fór af velli. Hefði viljað gera betur í færi sem hún fékk í fyrri hálfleik.

Agla María Albertsdóttir - 6
Skilaði flottu dagsverki áður en hún fór út af. Átti mjög fína skottilraun í fyrri hálfleik, en við hefðum einmitt átt að skjóta meira í fyrri hálfleiknum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 6
Átti mjög flotta aukaspyrnu í fyrri hálfleik sem skapaði besta færi Íslands. Hefðum alveg mátt koma henni meira í boltann.

Hlín Eiríksdóttir - 5
Fékk ágætis færi í fyrri hálfleik til að skora en fann sig annars ekki alveg.

Sveindís Jane Jónsdóttir - 5
Var öflug í fyrri hálfleik en dró af henni í seinni. Náðum ekki að koma henni nægilega mikið inn í leikinn.

Varamenn:
Hildur Antonsdóttir - 6
Sandra María Jessen - 5
Berglind Rós Ágústsdóttir - 5
Fanndís Friðriksdóttir - 5
Athugasemdir
banner
banner