Ítalski sóknarleikmaðurinn Federico Chiesa er að íhuga að flytja aftur á heimaslóðir eftir eitt ár hjá Liverpool í enska boltanum.
Chiesa missti af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla og náði sér svo aldrei á strik undir stjórn Arne Slot. Hann á þó þrjú ár eftir af samningi sínum við Liverpool.
Chiesa er 27 ára gamall og kom að 4 mörkum í 14 leikjum með Liverpool á tímabilinu.
„Þetta er eitthvað sem ég þarf að hugsa um í sumar," svaraði Chiesa þegar hann var spurður út í mögulega endurkomu í ítalska boltann. „Markmiðið mitt er að vera tilbúinn fyrir undirbúningstímabilið með Liverpool. Ég á í mjög góðum samskiptum við félagið og fjölskyldan mín og umboðsmaður sömuleiðis. Við munum finna lausn sem hentar fyrir alla aðila.
„Ég er að fylgja sumaræfingum Liverpool eftir og ætla að vera í toppformi þegar við mætum til leiks á undirbúningstímabilinu í júlÍ. Ég vona að næsta tímabil verði mitt tímabil. Mig dreymir um að taka þátt á næsta HM með Ítalíu."
Chiesa viðurkenndi einnig að það hafi aldrei verið hans hugmynd að yfirgefa Juventus. Thiago Motta tók við sem þjálfari félagsins og sagði að Chiesa myndi ekki passa við leikstílinn sem hann vildi spila og bað kantmanninn um að finna sér nýtt félag, sem hann gerði.
Athugasemdir