Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 03. júní 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gamli FH-ingurinn sterklega orðaður við RB Leipzig
Neestrup ræðir hér við Orra Stein Óskarsson, fyrrum framherja FC Kaupmannahafnar.
Neestrup ræðir hér við Orra Stein Óskarsson, fyrrum framherja FC Kaupmannahafnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jacob Neestrup, þjálfari FC Kaupmannahafnar, er núna sterklega orðaður við RB Leipzig í Þýskalandi.

Samkvæmt heimildum Sky í Þýskalandi hefur Marcel Schäfer, yfirmaður fótboltamála hjá Leipzig, fylgst lengi með Neestrup.

Neestrup, sem er 37 ára gamall, hefur stýrt FC Kaupmannahöfn frá árinu 2022, en þar áður var hann aðstoðarþjálfari liðsins.

Neestrup átti ekki merkilegan leikmannaferil en hann spilaði meðal annars með FH hér á Íslandi sumarið 2010. Hann spilaði ekki mikið með FH þar sem hann lenti í bílslysi.

Sem þjálfari FCK hefur hann unnið dönsku úrvalsdeildina tvisvar og danska bikarinn tvisvar.
Slapp
Athugasemdir
banner