Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gyökeres dregur sig úr landsliðshópnum
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres gefur ekki kost á sér með sænska landsliðinu í æfingaleikjum gegn Ungverjalandi og Alsír vegna 'smávægilegra meiðsla'.

Gyökeres hefur átt magnað tímabil með Sporting CP í portúgalska boltanum og er gríðarlega eftirsóttur. Hann er helst orðaður við Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en fleiri félög eru áhugasöm.

Gyökeres er með 100 milljón evra söluákvæði hjá Sporting en hann hefur gert heiðursmannasamkomulag við félagið um að vera seldur fyrir lægri upphæð. Talið er að Sporting sé reiðubúið til að samþykkja 70 milljón evra tilboð fyrir leikmanninn.

Gyökeres, 26 ára, skoraði 54 mörk í 52 leikjum með Sporting á tímabilinu auk þess að gefa 13 stoðsendingar. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við félagið.
Athugasemdir
banner