Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 03. júní 2025 21:38
Haraldur Örn Haraldsson
Steini um þjóðsönginn: Auðvitað var þetta bara pínlegt
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og fram kom fyrr í kvöld var vesen á hljóðkerfinu þegar átti að spila franska þjóðsönginn fyrir leik Íslands og Frakklands í kvöld.


Húbbabúbba hafði verið að skemmta fyrir leik með lögum sínum og blandaðist lagið þeirra við þjóðsöng Frakka.

Þorsteinn Halldórsson var á fjölmiðlafundi eftir leik og sagði frá því hvernig þetta sá við honum frá hliðarlínunni.

„Ég náttúrulega skildi ekkert hvað var í gangi. Rétt fyrir þjóðsönginn þá heyrði maður eitthvað í þeim á RÚV, þannig ég skildi ekkert hvað var að gerast. Auðvitað var þetta bara pínlegt fyrir okkur, en þetta er eitthvað mál sem svo sem kemur mér ekkert við. "


Slapp
Athugasemdir
banner