Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 21:35
Haraldur Örn Haraldsson
Steini um val á markverði: Hinar þurfa að fara spila til að þrýsta á hana
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cecilía er markvörður númer eitt
Cecilía er markvörður númer eitt
Mynd: Bayern München
Sveindís spilaði upp á topp í kvöld
Sveindís spilaði upp á topp í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson ræddi við blaðamenn eftir leik Íslands og Frakklands í kvöld á fjölmiðlafundi. Hann ræddi þar ýmis leikmanna mál, meðal annars stöðu Sveindísar Jane og Cecilíu Rán, auk þess að ræða um valið á komandi landsliðshóp fyrir EM.


„Ástæðan fyrir því að Sveindís var senter í dag, snerist meira um það að kantararnir þurftu að vinna langt niður," sagði Þorsteinn aðspurður um stöðu Sveindísar í framlínunni. 

„Sem þýddi það að þá væri þetta mjög löng leið fyrir hana til þess að vera ógnandi í sóknarleiknum. Þannig ég horfði í það, að bakverðirnir hjá þeim spila mjög hátt og fara mikið upp í sóknunum. Kantmennirnir hjá okkur þurfa þá að vinna langt niður. Þannig mér fannst það bara of löng leið fyrir hana að vera partur í sóknarleiknum og ógna með hraða og öðru. Þannig ég notaði hana bara sem senter í dag, og það er bara ástæðan fyrir því," sagði Þorsteinn.

Leikmenn í fremstu línu voru mjög flæðandi í sóknarleik Íslands en það er taktík sem Þorsteinn hefur verið að nýta sér undanfarið.

„Í síðustu leikjum höfum við verið með það system að þær rótera á milli og finna sér sínar stöður. Þær mega alveg breyta, það er alveg frjálst í því og er búið að vera í síðustu leikjum okkar svoleiðis. Það hefur gengið bara ágætlega að mörgu leyti. Í þessum leik var ég á þeirri skoðun að ef við lægjum langt niðri þegar við erum að sækja, af því að kantararnir þurfa að vinna sig mikið niður þá vildi ég nýta hraðan hennar líka á móti þeim. Auðvitað var hún orðin þreytt og allt það, en samt sem áður veit maður aldrei. Það er alltaf hægt að skoða ef og hefði en ég taldi þetta bara best í þessum leik," sagði Þorsteinn.

Cecilía Rán hefur átt mjög góðan landsliðs glugga en hún hefur verið valinn maður leiksins í síðustu tveimur leikjum.

„Þegar að þessi riðlakeppni byrjaði þá var hún eini markmaðurinn af þessum þremur sem var að spila reglulega. Fanney skipti til Svíþjóðar og spilaði lítið, Telma skipti til Skotlands og spilaði lítið. Þannig það hefur ekki verið draumurinn að markmaður spili lítið og komi svo inn í landsliðið. Þannig hún hefur bara staðið sig vel og það hefur engu verið að kvarta með hana. Eins og staðan er í dag er hún bara markmaður númer eitt. Hinar þurfa bara að fara spila til að raunverulega þrýsta á hana," sagði Þorsteinn.

Þorsteinn þarf að velja landsliðshóp fyrir EM eftir aðeins 10 daga en það hefur verið eitthvað um meiðsli í hópnum. Hann segir að það gæti orðið erfitt að velja þennan hóp.

„Já að mörgu leyti. Ef við skoðum árið í fyrra miðað við núna, þá er lítið af breytingum á milli leikja og núna höfum við verið að gera breytingar milli leikja vegna meiðsla, meira segja inn í verkefnum vegna meiðsla. Það var ekki vandamál hjá okkur í fyrra, það er aðeins meira hnjask á leikmannahópnum en hefur verið. Það er svo oft sem við höfum þurft að breyta hóp, bæði búið að tilkynna hóp, svo er gert breytingar eftir það og svo eru kannski breytingar inn í verkefnum. Þetta er ekki mál sem við höfum verið mikið að eiga við. Klárlega er það smá áhyggjuefni að sumir leikmenn eru búnir að vera meiddir og eru kannski að koma til baka, eða það eru meiðsli og leikmenn eru að koma tæpir fyrir EM. Þannig það er klárlega áhyggjuefni, og skýr mynd á hópnum er raunverulega ekki komin. Það er ákvörðun sem við verðum bara að taka á næstu tíu dögum um það hvernig hópurinn verður eftir tíu daga. Það eru ákveðin spurningamerki þar líka," sagði Þorsteinn.


Athugasemdir
banner