
Lokaumferð í deildakeppni Þjóðadeildarinnar fór fram í dag og í kvöld. Framundan eru umspilsleikir um sæti í deildum og úrslitakeppni toppliðanna.
Ísland endar í 3. sæti í A-deild og á því umspilsleiki framundan í tilraun til að halda sæti sínu í deildinni og falla ekki með Svisslendingum niður í B-deild.
Ísland getur mætt Norður-Írlandi, Írlandi, Finnlandi eða Tékklandi í umspilinu. Þetta eru þjóðirnar sem enduðu í öðru sæti sinna riðla í B-deildinni.
Norður-Írar náðu jafntefli við Bosníu í lokaumferðinni til að tryggja sér annað sætið á meðan nágrannar þeirra frá Írlandi enda í öðru sæti á markatölu. Þær írsku eru óheppnar að fara ekki beint upp í A-deildina.
Á sama tíma mistókst Finnum að taka toppsæti síns riðils af Serbum á meðan þær tékknesku voru óheppnar að enda í öðru sæti á eftir Úkraínu, sem tryggði sér sæti í A-deildinni.
Í C-deildinni tókst smáþjóðum Kósovó og Lúxemborg að tryggja sér þátttöku í umspili um sæti í B-deild, sæti sem Færeyingar rétt missa af og eru frænkur okkar því áfram í neðstu deild.
Kýpur, Malta og Lettland eru meðal þjóða sem fara einnig í umspilið um sæti í B-deild.
B-deild
Albanía 1 - 2 Tékkland
Bosnía 1 - 1 N-Írland
Króatía 2 - 0 Úkraína
Finnland 1 - 1 Serbía
Grikkland 0 - 1 Tyrkland
Ungverjaland 0 - 0 Belarús
Írland 1 - 0 Slóvenía
Pólland 3 - 0 Rúmenía
C-deild
Andorra 0 - 0 Malta
Búlgaría 0 - 1 Eistland
Færeyjar 1 - 2 Slóvakía
Georgía 1 - 2 Kýpur
Gíbraltar 0 - 4 Moldóva
Kasakstan 1 - 3 Lúxemborg
Lettland 2 - 2 Kósovó
Liechtenstein 2 - 2 Armenía
Litháen 0 - 1 Svartfjallaland
Athugasemdir