
Þá er komið að slúðri dagsins en núna er sumarið komið á fleygiferð og alls konar sögur á kreiki.
Hér fyrir neðan má sjá helstu slúðursögur dagsins.
Hér fyrir neðan má sjá helstu slúðursögur dagsins.
Inter Milan er að vonast til þess að fá sóknarmanninn Rasmus Höjlund (22) á láni frá Manchester United í sumar. (Gazetta dello Sport)
Jean-Philippe Mateta (27), sóknarmaður Crystal Palace, er á meðal sóknarmanna sem Manchester United hefur áhuga á, en AC Milan og Juventus eru einnig áhugasöm um hann. (Teamtalk)
Það er búist við því að bakvörðurinn Myles Lewis-Skelly (18) muni skrifa undir nýjan samning við Arsenal í sumar en Real Madrid hefur sýnt honum áhuga. (Mail)
Liverpool hefur náð samkomulagi við Florian Wirtz (22) um samning til 2030 en félagið á enn eftir að ná samkomulagi við Bayer Leverkusen um kaupverð. Leverkusen vill fá 150 milljónir evra en Liverpool bauð síðast 130 milljónir evra. (Bild)
Barcelona hefur byrjað viðræður við Liverpool um kantmanninn Luis Diaz (28) en það er líka áhugi á honum frá Sádi-Arabíu. (Florian Plettenberg)
Chelsea ætlar að reyna að fá miðvörðinn Jarrad Branthwaite (22) frá Everton en Tottenham er líka með hann á blaði hjá sér. (Teamtalk)
Jobe Bellingham (19), miðjumaður Sunderland, hefur valið að fylgja í fótspor bróður sína og fara til Borussia Dortmund. Hann valdi Dortmund fram yfir Eintracht Frankfurt og RB Leipzig. (Bild)
Chelsea er að íhuga að reyna við Jamie Gittens (19), kantmann Dortmund, en hann kemur til með að kosta í kringum 50 milljónir punda. (Guardian)
Manchester City er nálægt því að ná samkomulagi við AC Milan um Tijjani Reijnders (26), sem var besti miðjumaðurinn í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Reijnders verður líklega leikmaður City fyrir HM félagsliða sem hefst 14. júní. (Football Italia)
Everton, Manchester United og West Ham gætu reynt við sóknarmanninn Aleksandar Mitrovic (30) en Al-Hilal er tilbúið að losa sig við hann. (Talksport)
Brighton er að fylgjast með Ollie Arblaster (21), miðjumanni Sheffield United, sem er að koma til baka úr erfiðum meiðslum. (Teamtalk)
Jack Wilshere (33), fyrrum miðjumaður Arsenal, er líklegastur til að taka við Plymouth. (Sun)
Athugasemdir