Wharton til Real Madrid - Chelsea vill Vini - Sunderland horfir til Barcelona - Sterling að losna úr prísundinni?
   sun 04. janúar 2026 18:07
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Var Wirtz í rangstöðu?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fulham og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli eftir fjörugan og dramatískan leik.

Harry Wilson tók forystuna fyrir heimamenn í fyrri hálfleik en markið var upprunalega ekki dæmt vegna rangstöðu. Það var svo gefið mark eftir athugun í VAR-herberginum, þar sem Virgil van Dijk hélt Wilson réttstæðum.

Í síðari hálfleik jafnaði Florian Wirtz metin og aftur var ekki dæmt mark vegna rangstöðu, en markið var svo gefið eftir nánari athugun í VAR-herberginu.

Þessi ákvörðun hefur vakið mikla athygli og eru ýmis skjáskot sem hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum í kjölfarið.

Á þessum skjáskotum sést hvernig Wirtz er með hægri fótinn í rangstöðu, en á VAR-myndinni er fóturinn hans aftar og því ekki rangstæður.

Þetta mál á eftir að skýrast betur með tímanum þar sem mögulegt er að skjáskotin hafi verið tekin aðeins eftir að boltinn lagði af stað frá fæti Conor Bradley sem átti stoðsendinguna.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan ásamt brot af umræðunni á samfélagsmiðlinum X.

VAR offside check for Wirtz goal vs Fulham
byu/977x insoccer







Athugasemdir
banner
banner
banner