Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 13:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Liðið vel á Ítalíu eftir erfiðan tíma í Noregi: Þeir fíluðu mig ekki
Hjálpaði Cavese að halda sæti sínu í ítölsku C-deildinni.
Hjálpaði Cavese að halda sæti sínu í ítölsku C-deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mætti aftur til Ítalíu í vetur.
Mætti aftur til Ítalíu í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Lucas er leikmaður Blackburn en spilaði ekki lokakafla mótsins á Englandi vegna meiðsla.
Andri Lucas er leikmaður Blackburn en spilaði ekki lokakafla mótsins á Englandi vegna meiðsla.
Mynd: Blackburn Rovers
Daníel Tristan er að berjast fyrir mínútum hjá Malmö.
Daníel Tristan er að berjast fyrir mínútum hjá Malmö.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Andri Lucas og Sveinn Aron.
Andri Lucas og Sveinn Aron.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Skrifaði undir hjá Cavese í janúar.
Skrifaði undir hjá Cavese í janúar.
Mynd: Cavese
Sveinn Aron Guðjohnsen (1997) er með lausan samning eftir að tímabilinu með Cavese á Ítalíu lauk um liðna helgi. Framherjinn skrifaði undir samning við félagið í janúar eftir að hafa fengið sig lausan frá Sarpsborg í Noregi.

Sveinn Aron kom hann við sögu í þrettán leikjum með Cavese, byrjaði fjóra þeirra og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Seinna markið kom í jafntefli gegn toppbaráttuliði Cosenza síðasta sunnudag.

„Ég var að lenda í Malmö, er að heimsækja Daníel aðeins, ætla svo að kíkja yfir til Andra og eftir það er þetta svolítið óljóst," segir Sveinn Aron Guðjohnsen. Hann ræddi við Fótbolta.net í gær. Bræður hans eru þeir Daníel Tristan og Andri Lucas sem spila með Malmö og Blackburn.

Gekk heilt yfir vel
„Lífið á Ítalíu er æðislegt, búið að vera geggjað og gott veður. Lífið er töluvert betra þar, fíla menninguna. Fótboltinn hefur verið upp og niður, ég byrjaði nokkra leiki og gekk vel, það var líka smá fallbaráttustress. Heilt yfir myndi ég segja að það hafi gengið vel, við náðum að halda okkur uppi."

„Ég var þokkalega sáttur með mína spilamennsku, sérstaklega miðað við hvað ég var búinn að spila lítið í Noregi áður en ég kom. Ég myndi segja að bestu liðin í Seríu C væru kannski að berjast um að komast í topp 5 í Noregi, samt alls ekki hægt að bera þetta eitthvað saman við t.d. Bodö/Glimt."

„Það er eitthvað samtal um að ég verði mögulega áfram. Ég er með lausan samning og þarf að skoða það sem er í boði, mögulega verð ég ár í viðbót, en það er ekkert tilboð komið eða svoleiðis. Ég vil skoða hvaða möguleikar koma upp,"
segir Sveinn Aron.

Hann hefur á sínum atvinnumannaferli leikið með Spezia, Ravenna og Cavese á Ítalíu, OB í Danmörku, Elfsborg í Svíþjóð, Hansa Rostock í Þýskalandi og Sapsborg í Noregi. Hann á auk þess 20 leiki og tvö mörk fyrir A-landsliði. Hann spilaði 20. landsleikinn í janúar 2023.

Hvernig líður þér með staðinn sem þú ert á?

„Ég er mjög sáttur með að ég sé byrjaður að spila aftur og sýna mig. En að sjálfsögðu langar mig að spila á aðeins hærra leveli en þetta. Ég er í smá uppbyggingu eftir að hafa nánast ekki spilað í ár í Noregi."

Þeir fíluðu mig ekki
Framherjinn kom til Sarpsborg í sumarglugganum 2024. Hann kom alls við sögu í 33 leikjum með liðinu, skoraði tíu mörk og lagði upp tvö. En þegar leið á tímabilið 2025 urðu tækifærin og mínúturnar færri. Hvers vegna?

„Ég held að ástæðan fyrir því að ég var ekki að spila hafi hreinlega verið sú að þeir fíluðu mig ekki. Þeir vildu framherja sem hleypur mikið inn fyrir. Ég er meiri 'target' framherji. Ofan á það kom inn framherji á góðan pening og þeir spiluðu honum til að byrja með, hann skoraði og skoraði. Það er ekkert hægt að kvarta undan því að spila ekki þegar hinn framherjinn er markahæstur í deildinni."

Má segja að þetta hafi raðast óheppilega upp, þú fyrst fenginn, en svo annar og sá byrjar að raða inn?

„Í rauninni já, þegar ég kom hefði ég viljað ná smá undirbúningstímabili en ég kom inn á mitt tímabil þegar liðinu var ekkert að ganga frábærlega. Svo hugsaði ég að ná góðu undirbúningstímabili fyrir tímabilið 2025 en þá var keyptur nýr framherji (Daniel Karlsbakk) og hann raðaði inn."

Voru aldrei augnablik inn í lok leikja þar sem þjálfarinn vildi fá þig inn í lok leikja til að halda í boltann og stöðuna?

„Það komu alveg einhver augnablik, en síðan veit ég ekki hvað gerðist, það hætti allt í einu. Það voru heilt yfir ekki mörg augnablik þar sem við vorum að halda í stöðuna, vorum oftast að sækja mark. En þá kom ég samt ekki inn. Ég vissi eiginlega ekki hvað var í gangi."

Finnst þér þú að einhverju leyti hafa gleymst þegar hugsað og rætt um Íslendinga sem spila erlendis?

„Kannski smá, en ég er ekkert að velta mér upp úr því. Það er alveg eðlilegt miðað við hvað ég er búinn að spila lítið, sérstaklega á síðasta tímabili."

Útilokar ekki að skoða möguleika á Íslandi
Væri draumurinn að fá nokkra valmöguleika til að velja úr upp á næsta skref að gera?

„Það væri draumurinn að fá nokkra valmöguleika, geta sest niður og hugsað út frá því."

Hefur eitthvað hvarflað að þér að koma heim til Íslands, ná góðu tímabili til að komast aftur út?

„Ég er þannig séð opinn fyrir öllu. Ég mun skoða öll tilboð mjög vandlega, en get ekki sagt fyrr en tilboðin eru komin fyrir framan mig hverju ég myndi taka."

Geggjað að sjá bræðurna spila gegn Frökkum
Hvernig er að fylgjast með bræðrum þínum, eruð þið duglegir að horfa á alla leiki hjá hvor öðrum?

„Já, við erum duglegir við það. Það er geggjað að fylgjast með þeim. Það er bara skellur að Andri hafi meiðst. Við tölum saman eftir nánast hvern einasta leik, hvort sem það sé leikur hjá mér eða þeim."

„Við Daníel erum svipaðar týpur, Andri býður upp á meiri hlaup og dugnað. Ég myndi svo segja að Daníel sé tæknilega bestur af okkur bræðrum."

„Það var geggjað að fylgjast með þegar Andri var að spila alla leiki og skila inn mörkum mjög reglulega. Það var líka geggjað að sjá leikina á móti Frakklandi, sérstaklega leikinn þegar þeir spiluðu saman. Daníel spilaði mikið á síðasta tímabili og það var gaman að fylgjast með því. Það er geggjað að fylgjast með þeim þegar þeir eru að spila."


Andri Lucas fór til Lyngby frá Norrköping til að spila meira, var svo seldur til Belgíu þar sem hlutirnir gengu ekki alveg upp en um miðbik móts hjá Blackburn var hann að raða inn mörkum. Er uppsveiflan hjá Andra eitthvað sem þú horfir í, eitthvað sem þú vilt ná að gera?

„100%, mann langar alltaf að komast á þann sem stað sem stefnan er sett á, hærra. Maður hefur séð marga leikmann gera það og það er markmiðið," segir Sveinn Aron.
Slapp
banner
banner