Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 10:51
Elvar Geir Magnússon
Bellamy og Gerrard orðaðir við stjórastól Burnley
Craig Bellamy er landsliðsþjálfari Wales.
Craig Bellamy er landsliðsþjálfari Wales.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enskir fjölmiðlar og veðbankar eru farnir að velta því fyrir sér hver verði næsti stjóri Burnley. Liðið er fallið úr ensku úrvalsdeildinni og í morgun var tilkynnt að Scott Parker hefði yfirgefið félagið.

Craig Bellamy og Steven Gerrard, báðir fyrrum leikmenn Liverpool, eru nöfn sem talið er að séu efst á óskalista Burnley.

Bellamy hefur gert áhugaverða hluti sem landsliðsþjálfari Wales en hefur gefið í skyn að hugur sinn leiti í að stýra félagsliði. BBC greinir frá því að velska sambandið búi sig undir að Burnley hafi samband.

Gerrard var síðast stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu en þar áður stýrði hann Rangers og Aston Villa með misjöfnum árangri.

Aðrir sem hafa verið nefndir eru Ole Gunnar Solskjær fyrrum stjóri Manchester United, Russell Martin fyrrum stjóri Southampton, Liam Rosenior fyrrum stjóri Chelsea og þá er Sean Dyche orðaður við endurkomu.
Slapp
banner
banner
banner