Ashley Young, fyrrum leikmaður enska landsliðsins, hefur tilkynnt að hann hafi ákveðið að segja þetta gott í boltanum en hann er 40 ára gamall.
Young hóf feril sinn hjá Watford áður en hann spilaði fyrir Aston Villa, Manchester United, Inter, Aston Villa og Everton.
Young hóf feril sinn hjá Watford áður en hann spilaði fyrir Aston Villa, Manchester United, Inter, Aston Villa og Everton.
Hann endar ferilinn sem leikmaður Ipswich Town en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í júlí í fyrra eftir að samningur hans við Everton rann út.
Young lék sinn fyrsta landsleik fyrir England í nóvember 2007 og lék alls 39 landsleiki og skoraði sjö mörk.
„Þetta hefur verið ferðalag sem ég gat aðeins látið mig dreyma um sem strákur," skrifaði Young á samfélagsmiðla en Ipwich mætir Queens Park Rangers í lokaumferð Championship-deildarinnar á laugardag.
Ipswich er í öðru sæti en enn er mögulegt að liðið fari í umspil. Meiðsli hafa haft áhrif á tímabil Young en hann hefur bara spilað þrettán leiki, tíu af þeim sem varamaður.
Á ferlinum vann hann ensku úrvalsdeildina, Evrópudeildina, FA-bikarinn og deildabikarinn með Manchester United auk þess að verða Ítalíumeistari með Inter.



