Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 15:31
Elvar Geir Magnússon
Bara eitt hinna fjögurra sigurlausu er sigurstranglegra um helgina
Þjálfarar hinna fjögurra sigurlausu liða.
Þjálfarar hinna fjögurra sigurlausu liða.
Mynd: Fótbolti.net
KA hefur farið hægt af stað.
KA hefur farið hægt af stað.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Skagamenn eru enn án sigurs.
Skagamenn eru enn án sigurs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tapaði fyrir KR.
FH tapaði fyrir KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimmta umferðin í Bestu deildinni verður leikin um helgina en fjögur lið í deildinni hafa enn ekki afrekað það að vinna leik. Það eru ÍA, KA, FH og ÍBV.

Þegar stuðlar Epicbet veðbankans eru skoðaðir er bara eitt af þessum fjórum liðum sem er talið sigurstranglegra í sínum leik í komandi umferð. Það er KA.

Þór Akureyri - KA - laugardag klukkan 16
Sigur Þórs 2,79 - Jafntefli 3,88 - Sigur KA 2,36

Það er mikil eftirvænting fyrir þessum Akureyrarslag og þegar uppselt á leikinn. KA hefur farið illa af stað í deildinni síðustu ár og því miður fyrir Hallgrím Jónasson og lærisveina hefur ekki verið breyting á því í ár. Hann var verulega ósáttur við sína menn eftir tap gegn Keflavík í síðustu umferð.

   26.04.2026 21:09
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“

Stjarnan - ÍA - sunnudag klukkan 16
Sigur Stjörnunnar 2,15 - Jafntefli 4,08 - Sigur ÍA 3,04

Skagamenn spenntu bogann á leikmannamarkaðnum í vetur en uppskeran hefur ekki verið eftir því. Lárus Orri Sigurðsson gerði virkilega vel þegar hann tók við ÍA á miðju tímabili í fyrra en byrjunin á þessu tímabili hefur verið mjög erfið og lykilmenn á meiðslalistanum.

   27.04.2026 21:52
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli

FH - Fram - sunnudag klukkan 18
Sigur FH 3,43 - Jafntefli 3,96 - Sigur Fram 2,02

Það hafa verið miklar og umdeildar breytingar á stefnu FH en yngt hefur verið hressilega upp í liðinu og nýjar áherslur undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Miðað við byrjunina á tímabilinu gæti þessi vegferð tekið langan tíma og tímabilið verið erfitt Hafnfirðingum.

   27.04.2026 21:17
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt

ÍBV - Breiðablik - sunnudag klukkan 18
Sigur ÍBV 4,27 - Jafntefli 4,14 - Sigur Breiðablik 1,77

Af öllum úrslitum umferðarinnar er talið ólíklegast að ÍBV nái sigri. Eyjamenn hafa litið mjög illa út og fengið skelli í síðustu tveimur leikjum. Aleksandar Linta á erfitt verkefni fyrir höndum að berja trú í sína leikmenn sem hafa virkað andlausir. Ekki hjálpar að stuðningsmenn ÍBV hafa mætt illa á leikina.

   28.04.2026 13:16
Löng heimferð hjá Eyjamönnum - „Er ekki týpan sem gefst upp"


Komandi umferð í Bestu deildinni:

laugardagur 2. maí
16:00 Þór-KA (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-KR (N1-völlurinn Hlíðarenda)

sunnudagur 3. maí
16:00 Stjarnan-ÍA (Samsungvöllurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
18:00 FH-Fram (Kaplakrikavöllur)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner