„Ég held að ögranir stuðningsmanna Atletico hafi orðið til þess að dómarinn breytti um skoðun," sagði Declan Rice, leikmaður Arsenal, eftir leikinn gegn Atletico Madrid í gær.
Arsenal fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik og vildi svo fá aðra í seinni hálfleiknum. Vítaspyrnan var dæmd en eftir skoðun var dómurinn tekinn til baka. Danny Makkelie dæmdi leikinn. 70 þúsund stuðningsmenn heimamanna blístruðu á meðan Makkelie horfði á atvikið 13 sinnum í skjánum.
„UEFA er gjörólíkt ensku úrvalsdeildinni. Í báðum teigum verður maður að vera svo varkár því þeir dæm á allt sem hægt er að dæma á."

Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir í fyrri hálfleik en Julian Alvarez jafnaði eftir að Marcos Llorente á skottilraun sem fór í fótinn á Ben White og þaðan í hönd enska varnarmannsins. VAR dæmdi víti í því tilviki og eftir inngrip VAR var ákveðið að dæma ekki annað víti fyrir Arsenal þegar Eberechi Eze fór niður í vítateig Atletico. Lokatölur urðu 1-1 á heimavelli Atletico.
„Við fyrstu sýn hélt ég að þetta yrði ekki gefið í úrvalsdeildinni því skotið var svo lágt og boltinnfór ekki á markið. Í Meistaradeildinni eru dómarar mjög fljótir að taka ákvarðanir og flauta og maður getur ekki gert mikið í því. Mér finnst eins og þeir refsi manni meira í Evrópu. En það skiptir ekki máli, við höldum áfram í næstu viku og viljum sigra Atletico," sagði Rice.
Seinni leikurinn fer fram á Emirates leikvanginum í London næsta þriðjudag.