Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Enska sambandið kærir Chelsea og West Ham
Adama Traore kastaði Cucurella í grasið og lenti síðan upp á kant við Joao Pedro
Adama Traore kastaði Cucurella í grasið og lenti síðan upp á kant við Joao Pedro
Mynd: EPA
Enska fótboltasambandið, FA, hefur kært Chelsea og West Ham eftir slagsmálin sem áttu sér stað í leik liðanna um helgina.

Mikil átök og læti brutust út seint í uppbótartíma. Adama Traore fleygði Marc Cucurella í grasið og þá var ekki aftur snúið.

Jean-Clair Todibo, varnarmaður West Ham, tók brasilíska sóknarmanninn Joao Pedro hálstaki og fékk að líta rauða spjaldið í leik sem Chelsea vann 3-2 eftir magnaða endurkomu í síðari hálfleiknum.

Athletic segir að enska fótboltasambandið hafi kært bæði félög fyrir að hafa ekki hemil á leikmönnum.

Félögin hafa frest til föstudags til þess að svara ákærunni.


Athugasemdir
banner
banner