Talið er mjög líklegt að argentínski varnarmaðurinn Cristian Romero færi sig frá Tottenham í sumar en hann hefur verið óhræddur við að gagnrýna stjórnendur félagsins.
Atletico og Real Madrid eru sögð fylgjast grannt með þróun mála en þau hafa verið orðuð við Romero í gegnum tíðina.
Argentínski blaðamaðurinn Gaston Edul segir að Romero hafi fengið fyrirspurnir frá félögum á Spáni og öðrum deildum. Hann fullyrðir að Romero hafi gert upp hug sinn og ætli að yfirgefa Tottenham í sumar.

Sjálfur hefur Romero lýst því yfir að hann vilji spila í La Liga deildinni á Spáni og mest hefur hann verið orðaður við Atletico Madrid.
Real Madrid ætlar að fá inn miðvörð næsta sumar en Romero passar þó ekki í áætlanir félagsins. Hann verður þá orðinn 28 ára en Real Madrid vill helst fá inn yngri leikmenn.
Cristian Cuti Romero tiene sondeos de de La Liga de España y otra liga más.
— Gastón Edul (@gastonedul) February 3, 2026
Ya los había tenido en el mercado de pases anterior y estuvieron a un paso de la oferta formal.
Va a salir de Tottenham en el próximo mercado de junio. pic.twitter.com/OWrjDpQgf5
Athugasemdir