Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
banner
   mið 04. febrúar 2026 17:47
Brynjar Ingi Erluson
Vongóðir um að Ronaldo verði með á föstudag
Mynd: EPA
Stjórnarmenn sádi-arabísku deildarinnar eru vongóðir um að Cristiano Ronaldo ljúki verkfalli sínu og verði með Al Nassr gegn Al Ittihad á föstudag.

Sky segir frá því að fréttirnar hafa ekki verið staðfestar en að hljóðið í stjórnarmönnum sé mjög gott og að leikurinn gegn Al Ittihad sé of mikilvægur til að missa af.

Hann er samningsbundinn Al Nassr og er skyldugur til þess að spila með liðinu nema hann sé meiddur sem er ekki staðan í þessu tilviki. Engar myndir hafa birst af Ronaldo á samfélagsmiðlum Al Nassr síðan á sunnudag.

Ronaldo, sem fagnar 41 árs afmæli sínu á morgun, hefur komið sínu á framfæri og er nú reiðubúinn að snúa aftur í liðið, en hann spilaði ekki síðasta leik til að mótmæla ákvarðanatökum PIF (ríkissjóðsins í Sádi-Arabíu) sem hann telur setja önnur félög í forgang á leikmannamarkaðnum.

Al Nassr getur komið sér á toppinn í deildinni á föstudag ef Al Hilal tapar stigum gegn Al Akhdoud á morgun.
Athugasemdir
banner
banner