Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   mið 04. mars 2026 08:16
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola brjálaður: Svo augljós vítaspyrna að það nær engri átt
Mynd: EPA
Andoni Iraola var brjálaður eftir markalaust jafntefli hjá Bournemouth og Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi því hann vildi fá dæmda vítaspyrnu.

Bournemouth var sterkara liðið á heimavelli gegn Brentford en tókst ekki að skora. Marcus Tavernier skaut tvisvar sinnum í stöngina og átti að fá vítaspyrnu þegar Michael Kayode braut augljóslega á honum innan vítateigs, en ekkert var dæmt.

Kayode sparkaði aftan í Tavernier þegar hann reyndi að skora úr dauðafæri og tókst að trufla leikmanninn nóg til að láta hann skjóta í stöngina. Leikmenn Bournemouth vildu fá vítaspyrnu en atvikið var ekki skoðað í VAR-herberginu sem verða að teljast risastór mistök. Sjáðu atvikið.

„Það er erfitt að útskýra hvernig við unnum ekki þennan leik í dag, þetta var einn af okkar bestu leikjum á þessu ári. Við stjórnuðum leiknum gegn sterkum andstæðingum og fengum góð færi, það er ótrúlegt að við höfum ekki skorað. Ryan Christie fékk algjört dauðafæri og svo áttum við að fá vítaspyrnu sem ég get ekki samþykkt. Það er gjörsamlega óskiljanlegt hvernig við fengum ekki vítaspyrnu þegar var brotið á Tavernier," sagði Iraola við fréttamenn að leikslokum.

„Við áttum skilið að fá þrjú stig en fengum bara eitt. Við höfum verið að gera alltof mikið af jafnteflum sem er ekki nógu gott. Við erum mjög svekktir þrátt fyrir að vera komnir með 40 stig á deildartímabilinu útaf því að við vitum að þau ættu að vera fleiri miðað við hvernig við höfum verið að spila.

„Ég á erfitt með að samþykkja þetta jafntefli í dag útaf vítaspyrnunni sem við áttum að fá. Þetta er svo augljós vítaspyrna að það nær engri átt. Þetta er gjörsamlega óviðunandi og gerir mig virkilega reiðan. Þetta er svo augljóst!"


Samkvæmt reglubókinni átti vítaspyrna að vera dæmd og hefði Kayode einnig verið sendur í sturtu með beint rautt spjald fyrir að ræna upplögðu marktækifæri.

Bournemouth er um miðja deild með 40 stig, fjórum stigum á eftir Brentford í evrópubaráttunni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner