Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   mið 04. mars 2026 00:38
Ívan Guðjón Baldursson
Íslensk mörk á Ítalíu - Emelía á skotskónum
Mynd: KSÍ
Mynd: Triestina
Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu.

Óttar Magnús Karlsson var í byrjunarliði Renate og skoraði síðasta markið í þriggja marka sigri á útivelli gegn Lecco.

Liðin mættust í mikilvægum slag í umspilsbaráttunni og var þetta þriðji sigurinn í röð hjá Renate í C-deild ítalska boltans. Óttar og félagar sitja í þriðja til fjórða sæti þegar átta umferðir eru eftir.

Í sömu deild skoraði Kristófer Jónsson í tapi Triestina á heimavelli, en liðið er svo gott sem fallið niður í D-deildina eftir að hafa byrjað tímabilið með 23 mínusstig.

Í B-deildinni var Bjarki Steinn Bjarkason ekki í hóp er topplið Venezia rúllaði yfir Avellino. Feneyingar deila toppsætinu með Monza, sex stigum fyrir ofan Frosinone sem á þó leik til góða.

Í þriðju efstu deild í Þýskalandi varði Lúkas Petersson mark varaliðs Hoffenheim og átti mjög góðan leik í sigri á útivelli. Lúkas varði fimm af sex marktilraunum sem hæfðu rammann og siglir Hoffenheim lygnan sjó með 35 stig eftir 27 umferðir.

Í Hollandi sat Willum Þór Willumsson allan tímann á bekknum er liðsfélagar hans í NEC Nijmegen lögðu sögufrægt stórlið PSV Eindhoven að velli í undanúrslitum hollenska bikarsins.

Heimamenn í Nijmegen voru sterkari aðilinn og verðskulduðu sigurinn eftir spennandi slag þar sem liðin skiptust á að taka forystuna og urðu lokatölur 3-2.

Nijmegen mætir annað hvort AZ Alkmaar eða Telstar í úrslitaleiknum, en Nökkvi Þeyr Þórisson leikur á láni hjá Telstar sem hefur verið eitt af spútnik liðum tímabilsins í Hollandi ásamt Nijmegen.

Að lokum voru Benoný Breki Andrésson og Jason Daði Svanþórsson ekki í hópum Stockport County og Grimsby Town í dýrmætum sigrum í League One og League Two deildunum á Englandi vegna meiðsla.

Í kvennaboltanum vann FCK stórsigur í æfingaleik gegn Trelleborg frá Svíþjóð. Emelía Óskarsdóttir var á skotskónum fyrir FCK og leikur Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir einnig fyrir liðið. Emelía er á láni frá HB Köge út tímabilið.

Lecco 0 - 3 Renate
0-1 A. Delcarro ('17)
0-2 M. Cali ('52, víti)
0-3 Óttar Magnús Karlsson ('73)

Triestina 2 - 3 Dolomiti Bellunesi
0-1 E. Toci ('45+4)
0-2 G. Marconi ('55)
1-2 Kristófer Jónsson ('64)
1-3 S. Burrai ('83, víti)
2-3 E. Vertainen, sjálfsmark ('96)

Venezia 4 - 0 Avellino

Ulm 1 - 3 Hoffenheim II

NEC Nijmegen 3 - 2 PSV Eindhoven

Doncaster 0 - 1 Stockport

Grimsby 3 - 1 Salford

FCK W 7 - 0 Trelleborg W

Athugasemdir
banner
banner