Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   mið 04. mars 2026 09:38
Elvar Geir Magnússon
Ný hárgreiðsla Szoboszlai minnir á Beckham
Greiðslan þykir minna á fræga greiðslu David Beckham frá 2003.
Greiðslan þykir minna á fræga greiðslu David Beckham frá 2003.
Mynd: EPA
Ungverska stjarnan Dominik Szoboszlai hjá Liverpool frumsýndi nýja hárgreiðslu í tapleiknum gegn Wolves í gær. Miðað við viðbrögð á samfélagsmiðlum eru skiptar skoðanir á greiðslunni.

Szoboszlai er búinn að fá sér fastar fléttur og minnir greiðslan óneitanlega á fræga greiðslu sem David Beckham skartaði 2003.

Þessi greiðsla virðist vera að koma aftur í tísku en Antoine Griezmann og Rodrigo De Paul hafa líka skartað henni að undanförnu og einhverjir telja að liðsfélagi Szoboszlai, Hugo Ekitike, sé fyrirmyndin.

„Ekitike, hvað ertu búinn að gera við framtíðarfyrirliðann okkar?" skrifaði einn stuðningsmaður Liverpool á X.

Szoboszlai er allavega með sjálfstraustið í botni enda hefur hann verið besti leikmaður Liverpool á tímabilinu.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner