Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
1 á 1 mót Fótbolti.net og Adams Páls 17.júní - Prettyboitjokkó og Nadía Atladóttir skrá sig til leiks
Ívar Ingimars: Veit að við eigum miklu meira inni heldur en þetta
Gylfi Tryggva: Erum ekki að pæla mikið í töflunni
Willum: Munum sjá Birmingham í úrvalsdeildinni á innan við fimm árum
Logi á leið til Tyrklands - „Ógeðslega spennandi skref“
Hörður Björgvin himinglaður - „Maður sá ekki til sólar og það var mjög dimmt yfir“
Gústi Gylfa: Þeir stjórnuðu þó ég hafi reynt að garga eitthvað bakvið tjöldin
Sigga fannst sínir menn litlir: Hef ekki svör, skil ekki frammistöðuna
„Mun halda áfram að gera allt sem ég get til þess að lyfta þessum klúbb á hærra level"
Gunnar Már: Það styttist í sigurinn
Jói B: Búinn að hóta þessu allt tímabilið
Óli Íshólm: Skemmtilegra að mæta í vinnuna og vera ekki í fílu allan daginn
Arnar Pálmi í sigurvímu: Ótrúlegt að hann fór inn
Selfoss hefur tapað fimm leikjum í röð: „Þetta er ærið verkefni“
Venni: Hönnum okkar leik fyrir teppið og þetta var svo sannarlega ekki teppi
Alli Jói rosalega þakklátur Græna hernum: Þykir vænt um þetta
Árni Freyr: 'Þurfum að átta okkur á því að við erum í vondri stöðu'
Hemmi Hreiðars: Viljum að fólk hati að koma hingað
Ísak Bergmann: Þurfti að slökkva á samfélagsmiðlum
Cecilía: Mér fannst við vera með Frakkana í vasanum
   mið 04. júní 2025 22:36
Hafliði Breiðfjörð
Óli Íshólm: Skemmtilegra að mæta í vinnuna og vera ekki í fílu allan daginn
Lengjudeildin
Ólafur Íshólm í leik með Fylki fyrr í sumar.
Ólafur Íshólm í leik með Fylki fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það kom loksins sigur, það var liðsframmistaða sem sigldi þessu heim. Það er loksins eitthvað sem við getum aðeins byggt á," sagði Ólafur Íshólm Ólafsson markvörður Leiknis eftir 1-2 útisigur á hans gömlu félögum í Fylki í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  2 Leiknir R.

Leiknir hafði tvívegis fengið á sig sex mörk í síðustu tveimur leikjum en náðu að stoppa betur í götin í kvöld.

„Við einfölduðum leikinn svolítið, hættum að gefa mörk og gerðum hlutina og einfaldari og þéttari til baka. Þá er auðveldara að vinna," sagði Óli en var þetta þá orðið of flókið hjá þeim?

„Nei nei, við náðum mest að flækja þetta fyrir okkur sjálfir. Við vorum að velja vitlausu momentin í leikjum til að spila og fara stutt í staðinn fyrir langt og langt í staðinn fyrir stutt. Við völdum betur í kvöld."

Ágúst Gylfason tók við þjálfun liðsins af Ólafi Hrannari Kristjánssyni í gær og náði ekki að hafa mikil áhrif á liðið sem hann þó stýrði til sigurs í kvöld.

„Hann kom bara í gær og þetta var klárað seinnipartinn í gær. Hann talaði aðeins við okkur í gær og lagði sínar línur inn í liðið fyrir leikinn í dag. Svo sáu Nemmi og Ósi um þetta. Það er fínt að fá Gústa aðeins til að peppa þetta upp," sagði Óli.

Gústi er svolítið peppaður? „Hann er það. Hann er stemmningsmaður og mikill sigurvegari. Ég þekki hann ágætlega og var með hann í Blikunum og veit fyrir hvað hann stendur. Það er að verja markið fyrst og þá gengur aðeins betur að vinna leiki."

Ég heyrði einmitt hvað hann sagði við ykkur í klefanum eftir leik, að hann elskar að vinna fótboltaleiki!

„Við gerum það held ég allir, þetta er töluvert léttara svona og verður skemmtilegra að mæta í vinnuna á morgun og vera ekki í fílu allan daginn."

Þú ert ekki að vinna í Árbænum er það?

„Jú ég er reyndar að vinna í Árbænum. Ég er að blanda neftóbak, ég slepp reyndar við Fylkismenn þar, það eru bara Víkingar og HK-ingar að vinna með mér."

Þegar þið komist í 1-0 þá fáið þið fljótt gult spjald fyrir að tefja og þú tókst ágætis þátt í að draga niður klukkuna.

„Já, við erum ekki ennþá búnir að vinna leik og verðum að gera það sem þarf til. Það er ekki alltaf það skemmtilegasta að vera að tefja og láta klukkuna líða og vera ekki með boltann í leik, en það skiptir engu máli hvernig þessi sigur kemur við þurftum bara að ná í þennan sigur."

„Maður er alltaf með hjartað í buxunum þegar Fylkir eru komnir í þennan gír. Ásgeir og Orri komnir fram og það er erfitt að eiga við þá inni í teig. Þeir eru með flotta menn að krossa boltanum og maður er aldrei rólegur þegar þeir eru komnir fram að lemja á manni en við sigldum þessu heim."
Athugasemdir
banner
banner