Valið hjá Man Utd er milli Solskjær og Carrick - Newcastle fær samkeppni frá Spurs um Strand Larsen - Lewandowski vill ekki fara
   mán 05. janúar 2026 16:45
Kári Snorrason
Óþreytandi Zubimendi í sigri Arsenal
Duracell
Zubimendi vann boltann tólf sinnum gegn Bournemouth.
Zubimendi vann boltann tólf sinnum gegn Bournemouth.
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi var út um allan völl í 3-2 sigri Arsenal á Bournemouth um helgina.

Augu flestra beindust eflaust að miðjumanninum Declan Rice sem skoraði tvö mörk í leiknum en Zubimendi, kollegi hans á miðjunni, var þó ekki mikið síðri.

Alls vann sá spænski boltann tólf sinnum í leiknum, sem er það mesta sem leikmaður Arsenal hefur náð í 29 leikjum þeirra það sem af er tímabils.

Liðið er á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á Manchester City sem er í 2. sæti. Zubimendi hefur reynst Lundúnarliðinu vel, en hann kom frá Real Sociedad fyrir tímabil á 51 milljónir punda.

Fyrir afrek sitt fær Zubimendi Duracell viðurkenningu vikunnar hjá Fótbolti.net.



Athugasemdir
banner
banner
banner