Cristiano Ronaldo er óánægður með stjórnendur Al-Nassr, Manchester United skoðar miðjumenn og ungur Hollendingur er á óskalistum Arsenal og Liverpool. Þetta og fullt fleira áhugavert í slúðurpakkanum í dag.
Portúgalski framherjinn Cristiano Ronaldo (á 41 árs afmæli í dag) ætlar að halda verkfallinu áfram í annan leik með Al-Nassr þrátt fyrir að hafa birt mynd af sér á æfingu. Hann gæti beðið um að fara frá Sádi-Arabíu í sumar. (ESPN)
Ef Ronaldo yfirgefur Al-Nassr er líklegast að hann snúi aftur til Sporting í Lissabon, sitt fyrsta félag á atvinnumannaferlinum. (Fichajes)
Manchester United vill fá inn miðjumann og er Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest efstur á blaði. Adam Wharton (21) hjá Crystal Palace og Carlos Baleba (22) hjá Brighton eru þar á eftir. (The Athletic)
Liverpool og Arsenal vilja fá miðjumanninn Kees Smit (20) hjá AZ Alkmaar. Hann er talinn kosta um 65 milljónir punda en Real Madrid hefur fylgst vel með honum. (Caughtoffside)
Atletico Madrid hefur mikinn áhuga á að fá Cristian Romero (27) en varnarmaðurinn hefur verið duglegur við að gagnrýna félag sitt, Tottenham. (Sun)
David Hopkinson, framkvæmdastjóri Newcastle United, segist ekki hafa hugmynd um hvort umboðsmaður Sandro Tonali (25) hafi boðið hann til Arsenal. (TalkSport)
Portúgalski miðjumaðurinn Rúben Neves (28) hefur skrifað undir nýjan samning við Al-Hilal í Sádi-Arabíu til sumarsins 2029. Hann var orðaður við Manchester United og fleiri félög í janúarglugganum. (Fabrizio Romano)
Chelsea, Manchester City og Liverpool hafa áhuga á hollenska markverðinum Robin Roefs (23) hjá Sunderland, sem býst við tilboðum yfir 50 milljónum punda. (Football insider)
LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni er að skoða leiðir til að fá brasilíska miðjumanninn Casemiro (33) sem mun yfirgefa Manchester United í sumar. (Mail)
Franski varnarmaðurinn Dayot Upamecano (27) er tilbúinn að skrifa undir nýjan samning við Þýskalandsmeistara Bayern München til sumarsins 2030. (Fabrizio Romano)
Úlfarnir hafa samþykkt 22 milljóna punda tilboð Palmeiras í kólumbíska vængmanninn Jhon Arias (28) sem hefur þegar rætt við brasilíska félagið um kaup og kjör. (UOL)
West Ham hafði náð 27 milljóna punda samkomulagi við Crystal Palace um kaup á sóknarmanninum Eddie Nketiah (26) í janúarglugganum áður en meiðsli leikmannsins komu í veg fyrir skiptin. (Athletic)
Feyenoord í Hollandi er meðal félaga sem hafa sett sig í samband við Jesse Lingard (33), fyrrum leikmann Manchester United. Lingard, sem lék síðast í Kóreu, hefur einnig verið orðaður við West Ham, Wolves og Genoa. (Mail)
Robbie Savage er talinn líklegastur til að taka við Blackburn Rovers. (Football Insider)
Illan Meslier, markvörður Leeds United, hefur gert munnlegt samkomulag við tyrkneska félagið Besiktas en búist er við því að skiptin gangi í gegn fyrir helgi. (TeamTalk)
Athugasemdir


