Betis 0 - 5 Atletico Madrid
0-1 David Hancko ('12 )
0-2 Giuliano Simeone ('30 )
0-3 Ademola Lookman ('37 )
0-4 Antoine Griezmann ('62 )
0-5 Thiago Almada ('83 )
0-1 David Hancko ('12 )
0-2 Giuliano Simeone ('30 )
0-3 Ademola Lookman ('37 )
0-4 Antoine Griezmann ('62 )
0-5 Thiago Almada ('83 )
Nígeríumaðurinn Ademola Lookman átti draumabyrjun með Atlético Madríd sem pakkaði Real Betis saman, 5-0, í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins í kvöld og er því orðið ljóst hvaða fjögur lið munu spila í undanúrslitum
Slóvakinn David Hancko skoraði með skalla eftir hornspyrnu Koke á 12. mínútu og átján mínútum síðar bætti Giuliano Simeone, sonur Diego, þjálfara Atlético, öðru markinu eftir frábæran spilkafla gestanna.
Lookman, sem kom til Atlético frá Atalanta undir lok gluggans, opnaði markareikninginn í fyrsta leik er hann tók á móti laglegri sendingu Pablo Barrios, fór framhjá tveimur leikmönnum áður en hann setti boltann neðst í vinstra hornið.
Atlético með þægilega 3-0 forystu í hálfleik og var nóg bensín eftir á tanknum.
Lookman lagði upp fjórða markið fyrir Antoine Griezmann, markahæsta leikmanns í sögu Atlético, á 62. mínútu og þá gerði Argentínumaðurinn Thiago Almada fimmta og síðasta mark gestanna sjö mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Atlético komið í undanúrslit ásamt Barcelona, Athletic Bilbao og Real Sociedad, en dregið verður í hádeginu á morgun.
Athugasemdir



