Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 06. janúar 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Wolves og Forest: Strand Larsen fjarkaður
Mynd: Nottingham Forest
Mynd: EPA
Morgan Gibbs-White var valinn sem besti leikmaður vallarins í 0-3 sigri Nottingham Forest á útivelli gegn Wolves í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Gestirnir frá Nottingham nýttu færin sín ótrúlega vel í kvöld þar sem þeir skoruðu þrjú mörk úr þremur marktilraunum sem hæfðu rammann.

Úlfunum tókst hins vegar ekki að skora þrátt fyrir að stjórna leiknum á löngum köflum og eiga góðar marktilraunir, þar á meðal sex sem hæfðu rammann. Matz Sels hefur verið í miklu stuði með Forest á tímabilinu og hélt áfram í kvöld, hann fær 8 í einkunn hjá Sky Sports en er þó ekki valinn sem besti leikmaður vallarins.

Liðsfélagi hans Morgan Gibbs-White fær sömu einkunn og er útnefndur sem besti leikmaður vallarins en hann skoraði fyrsta mark leiksins og var öflugur á miðsvæðinu.

Callum Hudson-Odoi, Ola Aina og Nicolás Domínguez fá einnig 8 fyrir sinn þátt í sigrinum.

Norðmaðurinn Jörgen Strand Larsen var versti maður vallarins með 4 í einkunn. Rodrigo Gomes var besti leikmaður Úlfanna með 7 í einkunn en aðrir leikmenn liðsins fengu ýmist 5 eða 6 fyrir sinn þátt.

Wolves: Sa (6), Lima (6), Doherty (5), Bueno (6), R Gomes (7), Doyle (5), J Gomes (6), Ait-Nouri (6), Guedes (6), Strand Larsen (4), Hwang (5).
Varamenn: Lemina (5), Bellegarde (6), Sarabia (5), Forbs (6).

Nott. Forest: Sels (8), Aina (8), Milenkovic (7), Murillo (7), Williams (7), Dominguez (8), Anderson (7), Gibbs-White (8), Elanga (7), Wood (7), Hudson-Odoi (8).
Varamenn: Morato (6), Silva (6), Yates (6), Awoniyi (7), Ward-Prowse (7).
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner
banner