Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 15:33
Kári Snorrason
Arteta biður Rosenior afsökunar
Rosenior sakaði Arsenal um virðingaleysi í upphitun fyrir viðureign liðanna í deildarbikarnum á þriðjudag.
Rosenior sakaði Arsenal um virðingaleysi í upphitun fyrir viðureign liðanna í deildarbikarnum á þriðjudag.
Mynd: EPA
Saka meiddist í upphitun fyrir leik gegn Leeds í síðustu viku en er að snúa til baka.
Saka meiddist í upphitun fyrir leik gegn Leeds í síðustu viku en er að snúa til baka.
Mynd: EPA
Merino verður frá í nokkra mánuði.
Merino verður frá í nokkra mánuði.
Mynd: EPA
Mikel Arteta hefur beðið Liam Rosenior og Chelsea afsökunar eftir að Arsenal liðið hitaði upp á vallarhelmingi bláliða fyrir leik liðanna í deildarbikarnum á þriðjudag.

Rosenior, stjóri Chelsea, sagði Arsenal skorta virðingu og gagnrýndi það að liðið hitaði upp á vallarhelming síns liðs. Arteta sagði á blaðamannafundi í hádeginu bera virðingu fyrir skoðun Rosenior og segir ekki hafa tekið eftir trufluninni.

„Ég vissi ekki af þessu. En þetta er hans skoðun og við virðum allar skoðanir. Ef einhver frá okkur trufluðum eitthvað, þá biðjum við afsökunar. Þetta er mjög algengt í fótbolta og markverðir taka oft langar sendingar í upphitun.“

Styttist í Saka og Timber er klár
Arsenal mætir Sunderland klukkan þrjú á morgun. Arteta fór yfir stöðuna á hópnum fyrir leikinn.

„Saka er að jafna sig á vöðvamameiðslum og ég vonast til að hann snúi fljótlega aftur. Martin Ödegaard er einnig á batavegi og gæti verið klár eftir nokkra daga. Jurrien Timber er heill og klár fyrir helgina. Max Dowman hefur ekki hafið æfingar á ný og er enn frá í nokkrar vikur,“ sagði sá spænski.

Þá verður Mikel Merino frá í nokkra mánuði vegna meiðsla, en Arteta segir mikilvægt að halda honum nærri liðinu þar sem hann geti áfram lagt sitt af mörkum.

Hlusta ekki á utanaðkomandi raddir
Arsenal er á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á Manchester City sem er í öðru sæti. City mætir Liverpool á sunnudag og er ekki fjarstæðukennt að Arsenal gæti verið með níu stiga forskot eftir umferðina.

Arteta var spurður út í hvort að það fylgi pressa með umtali um að Englandsmeistaratitillinn gæti loks verið á leið á Emirates eftir rúmlega tuttugu ára bið.

„Við höfum ekki mikinn tíma til að hlusta á það. Við erum upptekin við leiki og æfingar. Við erum fjarri því. Það er eðlilegt. Við erum hér til að læra og bæta okkur.“
Athugasemdir
banner
banner