Það voru nokkur Íslendingalið sem mættu til leiks í kvennaboltanum í dag þar sem þýska stórveldið FC Bayern vann auðveldlega á útivelli í Íslendingaslag gegn Freiburg.
Glódís Perla sat á bekknum er stöllur hennar skoruðu fjögur mörk til að leggja Freiburg að velli á meðan Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá heimakonum.
Bayern er gjörsamlega að rúlla upp þýsku deildinni með 46 stig eftir 16 umferðir, 20 stigum meira heldur en Freiburg sem er að berjast um meistaradeildarsæti.
HB Köge tapaði þá æfingaleik gegn Chicago á meðan Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í liði Al-Qadsiya töpuðu gegn stórveldi Al-Nassr í efstu deild í Sádi-Arabíu.
Sara Björk var í byrjunarliðinu og skoraði eina mark Al-Qadsiya í leiknum. Al-Nassr er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar á meðan Al-Qadsiya er í baráttu um annað sætið.
Í efstu deild í Portúgal töpuðu lærlingar Kristjáns Guðmundssonar í liði Damaiense gegn stórveldi Sporting, en staðan hélst markalaus þar til í síðari hálfleik þegar hin nítján ára gamla Carolina Santiago kom inn af bekknum og skoraði þrennu.
Damaiense er á botni portúgölsku deildarinnar með 6 stig eftir 11 umferðir, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Að lokum hafði Álasund betur gegn Rosenborg og bar Malmö sigurorð af Nordsjælland í æfingaleikjum.
Freiburg 1 - 4 Bayern
Sporting 3 - 0 Damaiense
Köge 0 - 1 Chicago
Al-Nassr 3 - 1 Al-Qadsiya
Rosenborg 2 - 3 Aalesund
Malmö 3 - 2 Nordsjælland
Athugasemdir


