Það verða margir hörkuleikir í Lengjubikarnum um helgina en ellefu leikir eru spilaðir í karlaflokki og þá er einn í kvennaflokki.
Í kvöld mætast Keflavík og HK í riðli 1 A-deild Lengjubikar karla, en þetta eru liðin tvö sem mættust í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins síðasta haust þar sem Keflavík tryggði sér sæti í Bestu deildina. Leikurinn fer fram í Nettóhöllinni og hefst klukkan 19:00.
Afturelding mætir Gróttu í riðli 2 en sá leikur er spilaður á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Í riðli 4 mætast Fylkir og Breiðablik á meðan Þróttur spilar við FH í Laugardalnum.
Á morgun spilar ÍR við Þór í Akraneshöllinni og þá mun Valur mæta Völsungi frá Húsavík.
Víkingur R. tekur á móti Njarðvík á heimavelli hamingjunnar og KR mætir þá Grindavík í Vesturbæ.
Leikir helgarinnar:
föstudagur 6. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
19:00 Keflavík-HK (Nettóhöllin)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
18:30 Afturelding-Grótta (Malbikstöðin að Varmá)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
19:00 Þróttur R.-FH (AVIS völlurinn)
19:00 Fylkir-Breiðablik (tekk VÖLLURINN)
laugardagur 7. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
12:00 Ægir-Vestri (Akraneshöllin)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
15:00 ÍA-Þór (Akraneshöllin)
16:00 Valur-Völsungur (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
12:00 Víkingur R.-Njarðvík (Víkingsvöllur)
14:00 KR-Grindavík (KR-völlur)
16:00 ÍR-KA (Egilshöll)
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
14:00 ÍBV-Leiknir R. (Hásteinsvöllur)
Lengjubikar kvenna B-deild:
11:30 HK - Selfoss (Kórinn) .
Athugasemdir




