Samkvæmt fjölmiðlum hefur Manchester United rætt við umboðsmann Manuel Locatelli, leikmanns Juventus, um möguleg kaup enska félagsins í sumar.
The Touchline segir að Locatelli sé einn af leikmönnunum sem United skoðar sem mögulegan arftaka Casemiro sem yfirgefur félagið eftir tímabilið.
The Touchline segir að Locatelli sé einn af leikmönnunum sem United skoðar sem mögulegan arftaka Casemiro sem yfirgefur félagið eftir tímabilið.
Locatelli er 28 ára og á fast sæti í byrjunarliði Juventus. Hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins síðan Luciano Spalletti var ráðinn.
Hann er fyrirliði Juventus og er með eitt mark og eina stoðsendingu í 31 leik í öllum keppnum.
Hann kom til Juve sumarið 2021 en þá hafnaði hann því að fara til Arsenal. Hann vann EM 2020 með ítalska landsliðinu og hefur skorað þrjú mörk í 34 landsleikjum.
Samningur hans við Juventus er til 2028.
Athugasemdir


