Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve
Powerade
Real Madrid sýnir Konate áhuga að nýju.
Real Madrid sýnir Konate áhuga að nýju.
Mynd: EPA
Sandro Tonali.
Sandro Tonali.
Mynd: EPA
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: EPA
Góðan og gleðilegan föstudag. Það er komið að slúðurpakkanum. Spænska stórliðið Real Madrid horfir til leikmanna Liverpool, Ronaldo er ósáttur í Sádi-Arabíu og Tonali er orðaður við heimaland sitt.

Real Madrid hefur endurnýjað áhuga sinn á Ibrahima Konate (26), miðverði Liverpool. Samningur Frakkans rennur út í sumar og Real Madrid hefur verið duglegt við að sækja öfluga leikmenn á frjálsri sölu. (Mirror)

Real Madrid hefur einnig áhuga á Alexis Mac Allister (27) og gæti gert tilboð ef Liverpool er tilbúið að selja miðjumanninn í sumar. (Indykaila)

Sandro Tonali (25), ítalskur miðjumaður Newcastle, er efstur á óskalista Juventus fyrir sumarið. (Gazzetta dello Sport)

Barcelona íhugar að bjóða pólska sóknarmanninum Robert Lewandowski (37) nýjan samning en núgildandi samningur rennur út í sumar. Hann þyrfti þá að tak á sig launaskerðingu. (ESPN)

Framtíð Cristiano Ronaldo (41) hjá Al-Nassr er í óvissu en hann er með 44 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum í Sádi-Arabíu. (Athletic)

Sádi-arabíska deildin hefur varað Ronaldo við því að enginn leikmaður eigi að stýra ákvarðanatökum félags síns. Ronaldo ku vera mjög ósáttur við Al-Nassr í janúarglugganum. (Guardian)

Skoski landsliðsmaðurinn Scott McTominay (29) er í viðræðum við Napoli um að framlengja samning sinn til 2030. (Gazzetta dello Sport)

Kólumbíski sóknarmaðurinn Jhon Duran (22) er á leið til Zenit í Rússlandi eftir að lánssamningi Fenerbahce við Al-Nassr var rift. (TalkSport)

Robin van Persie, stjóri Feyenoord, vill fá sinn fyrrum liðsfélaga Jesse Lingard (33) í leikmannahóp liðsins. Lingard er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið FC Seoul. (Mail)

Leeds United ætlar að fá inn nýjan markvörð í sumar en brasilíski markvörðurinn Lucas Perri (28) sem var keyptur síðasta sumar hefur ekki staðið undir væntingum Daniel Farke. (Teamtalk)

Argentínski sóknarmaðurinn Alejo Veliz (22) hjá Tottenham verður seldur til Bahia í Brasilíu í sumar. Hann er á láni hjá Rosario Central. (Fabrizio Romano)

Porto hafnaði tilboði Atletico Madrid í sóknarmiðjumanninn Gabri Veiga (23) undir lok janúargluggans. (Fabrizio Romano)

Alex Oxlade-Chamberlain (32) hefur verið að taka þjálfaragráður og Mikel Arteta hefur áhuga á að fá hann í teymi sitt þegar hann hefur lagt skóna á hilluna. (Mail)
Athugasemdir
banner
banner