PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
   lau 06. júní 2026 00:08
Helgi Inguson
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Pablo Punyed (til hægri á myndinni) var ráðinn til Hauka í vetur
Pablo Punyed (til hægri á myndinni) var ráðinn til Hauka í vetur
Mynd: Haukar
Haukar unnu Hvíta riddarann í sjöttu umferð annarrar deildar í kvöld 2-0. Þó Hvíti Riddarinn væri ósigraður í deildinni fyrir þennan leik náði liðið ekki að stöðva sigurgöngu Hauka. Fotbolti.net ræddi við Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfara Hauka, að leik loknum.

Lestu um leikinn: Hvíti riddarinn 0 -  2 Haukar

Pablo hrósaði Hvíta riddaranum: "Þeir eru vel þjálfaðir og flottir strákar. Ég ætla að hrósa þeim því þeir eru að fara í vegferð sem er vel gerð. Það var erfitt að spila á móti þeim en frammistaða okkar var mjög góð. Margir fengu mínútur hjá okkur sem eru ekki búnir að spila mikið í sumar og stóðu sig mjög vel."

"Flott vegferð hjá okkur, við erum að reyna að ala upp leikmenn sem eru tilbúnir að taka næsta skref og á sama tíma taka Hauka á næsta stall. Þetta er hægt og rólega að skila sér," sagði Pablo um vegferðina sem félagið er á.

Pablo fór útaf eftir klukkutíma leik. Þá voru Haukar komnir tveimur mörkum yfir.

"Ég vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar svo að strákarnir sem eiga skilið að spila meira geti gert það, þá get ég verið meira á bakvið tjöldin en þetta á eftir að koma í ljós. Mér finnst svo gaman að spila og ég held áfram að gera það," sagði Pablo að lokum.
Slapp
banner
banner
banner