Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 17:19
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Coventry tapar áfram stigum - Andri kom inn af bekknum
Nýja árið byrjar ekkert sérstaklega vel hjá Frank Lampard og hans mönnum í Coventry
Nýja árið byrjar ekkert sérstaklega vel hjá Frank Lampard og hans mönnum í Coventry
Mynd: EPA
Andri Lucas kom inn af bekknum í tapi
Andri Lucas kom inn af bekknum í tapi
Mynd: Blackburn Rovers
Topplið Coventry tapaði stigum þriðja deildarleikinn í röð er það gerði markalaust jafntefli við Oxford í ensku B-deildinni í dag. Middlesbrough getur tekið toppsætið af þeim þegar liðið mætir Sheffield United á mánudag.

Lærisveinar Frank Lampard voru á miklu flugi fyrri hluta tímabilsins og ekki langt síðan liðið var með tíu stiga forystu og á hraðri leið með að ganga frá titlinum.

Gengi liðsins á nýju ári hefur verið afar slakt en það hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö.

Coventry var töluvert sterkari aðilinn í leiknum og fékk fjölmörg færi til að skora. Oxford missti meðal annars Will Lankshear af velli með seinna gula þegar stundarfjórðungur var til leiksloka, en samt tókst Coventry ekki að vinna. Hrós á baráttuglatt lið Oxford og geta leikmenn þeirra farið sáttir á koddann.

Coventry er áfram á toppnum með 59 stig, en bara einu stigi fyrir ofan Middlesbrough sem á leik til góða.

Andri Lucas Guðjohnsen spilaði síðasta stundarfjórðunginn hjá Blackburn Rovers sem tapaði fyrir Norwich, 2-0. Blackburn er í 22. sæti með 32 stig og aðeins markatölu frá því að vera fyrir ofan fallsæti.

Hollywood-lið Wrexham tapaði fyrir Millwall, 2-0, en Wrexham átti þarna möguleika á að komast upp töfluna. en missti af því. Millwall er í 5. sæti með 53 stig en Wrexham í sætinu fyrir neðan með 47 stig. Bæði lið eru í umspilssæti.

Úrslit og markaskorarar:

Derby County 1 - 2 Ipswich Town
0-1 Lewis Travis ('8 , sjálfsmark)
1-1 Rhian Brewster ('68 , víti)
1-2 Leif Davis ('77 )
Rautt spjald: Lewis Travis, Derby County ('90)

Coventry 0 - 0 Oxford United
Rautt spjald: Will Lankshear, Oxford United ('77)

Southampton 1 - 0 Watford
1-0 Cyle Larin ('70 )

Birmingham 2 - 1 Leicester City
1-0 Ibrahim Osman ('3 )
1-1 Issahaku Fatawu ('21 )
2-1 Jay Stansfield ('67 )
Rautt spjald: Bobby De Cordova-Reid, Leicester City ('32)

Hull City 2 - 3 Bristol City
1-0 Oli McBurnie ('24 )
1-1 Rob Atkinson ('33 )
1-2 Ross McCrorie ('39 )
1-3 Emil Riis ('50 )
2-3 Kieran Dowell ('78 )

Norwich 2 - 0 Blackburn
1-0 Ben Slimane ('73 )
2-0 Mohamed Toure ('78 )

Preston NE 1 - 0 Portsmouth
1-0 Alfie Devine ('40 )

Wrexham 0 - 2 Millwall
0-1 Max Cleworth ('59 , sjálfsmark)
0-2 Josh Coburn ('86 )

West Brom 0 - 0 Stoke City
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 31 17 8 6 63 35 +28 59
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Ipswich Town 30 15 9 6 51 29 +22 54
4 Hull City 31 16 6 9 50 43 +7 54
5 Millwall 31 15 8 8 39 36 +3 53
6 Wrexham 31 12 11 8 44 39 +5 47
7 Preston NE 31 12 11 8 38 34 +4 47
8 Bristol City 31 13 7 11 43 38 +5 46
9 Derby County 31 12 9 10 45 39 +6 45
10 Birmingham 31 12 9 10 43 39 +4 45
11 Watford 31 11 11 9 39 36 +3 44
12 QPR 31 12 8 11 42 43 -1 44
13 Stoke City 31 12 7 12 34 28 +6 43
14 Southampton 31 11 10 10 44 41 +3 43
15 Sheffield Utd 30 12 3 15 43 43 0 39
16 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
17 Norwich 31 10 6 15 39 42 -3 36
18 Charlton Athletic 30 9 9 12 29 38 -9 36
19 Portsmouth 29 8 9 12 27 38 -11 33
20 West Brom 31 9 6 16 32 47 -15 33
21 Leicester 31 10 8 13 41 47 -6 32
22 Blackburn 31 8 8 15 27 40 -13 32
23 Oxford United 31 6 10 15 28 41 -13 28
24 Sheff Wed 30 1 8 21 18 58 -40 -7
Athugasemdir
banner
banner