Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 16:25
Elvar Geir Magnússon
Lyktaði eins og brugghús þegar hann mætti í leik með Arsenal
Emiliano Viviano í leik með Sampdoria.
Emiliano Viviano í leik með Sampdoria.
Mynd: EPA
Emiliano Viviano spilaði sem markvörður fyrir fjölda ítalskra félaga fór í skemmtilegt viðtal við Gazzetta dello Sport þar sem hann sagði sögu frá tímabilinu 2013-14 en þá var hann þriðji markvörður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég spilaði ekkert því Szczesny átti magnað tímabil og svo var Fabianski," segir Viviano sem var þó óvænt kallaður inn í hóp gegn Everton.

„Ég fór út að skemmta mér og þegar klukkan var 2 um nóttina fór ég út af skemmtistaðnum til að fá mér sígarettu. Þá var ég búinn að fá SMS þar sem stóð: 'Fabianski er veikur, bíll kemur og sækir þig 6:30'."

„Ég var búinn að drekka hálfa vodkaflösku. Ég fór til félaga míns sem átti skemmtistaðinn og sýndi honum skilaboðin. Hann spurði: 'Hvað nú?' og ég svaraði: 'Láttu mig hafa meiri vodka'."

„Ég fór heim, fór í sturtu og þegar ég kom inn í klefa sagði Santi Cazorla við mig: 'Þú lyktar af alkóhóli, þetta er ógeðslegt' og ég fékk næstum kvíðakast. Ég hugsaði að ef ég þyrfti að spila þá væri ferli mínum lokið," segir Viviano.

Hann þurfti þó ekki að koma inn í umræddum leik. Eftir tímabilið gekk hann svo í raðir Sampdoria þar sem hann var í fjögur ár.
Athugasemdir
banner
banner