Sigdís Eva Bárðardóttir var í byrjunarliðinu hjá Norrköping og skoraði tvennu í þægilegum sigri í æfingaleik gegn Eskilstuna í dag.
Carrie Jones komst einnig á blað í 3-0 sigri en þessi leikur var liður í undirbúningi fyrir komandi keppnistímabil í Svíþjóð.
Växjö rúllaði yfir Kristianstad í öðrum æfingaleik á milli sænskra liða á meðan Linköping sigraði gegn Örebro. Danska stórveldið Bröndby sigraði þá Stabæk frá Noregi.
Í ítalska boltanum var Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir í byrjunarliði Parma en þurfti að fara meidd af velli undir lok fyrri hálfleiks. Parma endaði á að tapa 1-0 gegn Sassuolo og er aðeins með 9 stig eftir 13 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Birta Georgsdóttir lék fyrstu 75 mínúturnar í stóru tapi hjá Genoa gegn Lazio þar sem mikið var um færi. Genoa er aðeins með 7 stig og er það markatalan sem bjargar liðinu frá því að vera í eina fallsæti deildarinnar.
Að lokum lék Bergrós Ásgeirsdóttir allan leikinn í tapi Aarau gegn Young Boys í efstu deild í Sviss. Aarau situr þar á botninum með 3 stig eftir 12 umferðir.
Norrköping 3 - 0 Eskilstuna
1-0 Carrie Jones ('5)
2-0 Sigdís Eva Bárðardóttir ('30)
3-0 Sigdís Eva Bárðardóttir ('61)
Kristianstad 2 - 5 Vaxjö
Örebro 0 - 1 Linköping
Stabæk 0 - 3 Bröndby
Sassuolo 1 - 0 Parma
Genoa 2 - 5 Lazio
Young Boys 3 - 0 Aarau
Athugasemdir




