U16 landslið karla gerði 1-1 jafntefli við Tékkland í síðasta leik liðsins á sérstöku þróunarmóti, UEFA Development Tournament.
Þór Andersen Willumsson skoraði mark Íslands. Þar sem leikurinn endaði með jafntefli þá var gripið til vítaspyrnukeppni sem Tékkland vann 3-2.
Úrslitin þýða að Ísland endaði í þriðja sæti mótsins sem leikið var í Svíþjóð.
Þór Willumsson, sem er fæddur 2009 og er hjá Breiðabliki, er yngsti sonur Willums Þórs Þórssonar en bræður hans Willum Þór og Brynjólfur eru atvinnumenn og landsliðsmenn.

Athugasemdir