Mörg stór félög hafa áhuga á Mainoo - Toney og Rodrygo á óskalista Tottenham - Martínez ekki lengur varafyrirliði Villa
   fös 07. nóvember 2025 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo útskýrir af hverju hann fór ekki í jarðarför Jota
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Stórstjarnan Cristiano Ronaldo var ekki viðstaddur þegar Diogo Jota var jarðsunginn síðasta sumar.

Jota lést í hræðilegu bílslysi á Spáni í júlí og allur fótboltaheimurinn syrgði hann.

Það vakti athygli að Ronaldo mætti ekki í jarðarförina en hann var liðsfélagi Jota í portúgalska landsliðinu. Ronaldo hefur núna útskýrt það af hverju hann mætti ekki.

„Það eru tvær ástæður fyrir því," sagði Ronaldo í stóru viðtali við Piers Morgan.

„Eftir að faðir minn lést þá hef ég aldrei farið í kirkjugarð aftur. Svo er það þannig að það verður sirkus hvert sem ég fer. Athyglin myndi fara á mig og ég vildi ekki sjá það gerast."

Ronaldo sagði einnig í viðtalinu að það hefði verið gríðarlega erfitt að fá fréttirnar og hann hefði grátið mikið.
Athugasemdir
banner
banner