Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Emery varar Sancho við - „Býst við meiru frá honum"
Mynd: EPA
Unai Emery, stjóri Aston Villa, vonast til að sjá meira frá Jadon Sancho en hann er á láni hjá félaginu frá Man Utd.

Sancho hefur ekki staðið undir væntingum en hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í sigri gegn Fenerbahce í Evrópudeildinni í síðasta mánuði.

Hann kom að sínu fyrsta marki í úrvalsdeildinni í gær þegar hann lagði upp mark Morgan Rogers í 1-1 jafntefli gegn Bournemouth.

„Vonandi er hann að verða betri og getur hjálpað okkur. Ég býst við meiru frá honum og þar sem ég er bjartsýnn, vonandi mun hann gefa okkur það," sagði Emery.
Athugasemdir
banner
banner
banner