Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 13:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gasperini sló á létta stengi: Myndi leyfa Totti að spila
Mynd: Jóhann Þór Hólmgrímsson
Francesco Totti, goðsögn hjá Roma, er mögulega að snúa aftur til félagsins en hann átti frábæran feril sem leikmaður hjá félaginu og vann sem tæknistjóri frá 2017-2019.

Totti er 49 ára gamall en hann lagði skóna á hilluna árið 2017. Hann lék allan sinn feril hjá Roma. Hann skoraði 307 mörk í 786 leikjum fyrir liðið.

Gian Piero Gasperini, stjóri Roma, sló á létta strengi þegar hann var spurður út í mögulega enedurkomu Totti.

„Ég myndi leyfa honum að spila strax, svo framarlega sem hann æfir, þá er ekkert vandamál," sagði Gasperini og hló.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner