Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. febrúar 2026 20:49
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Meistarabragur á Inter - Þórir Jóhann ónotaður varamaður
Lautaro er nú þriðji markahæsti leikmaður í sögu Inter
Lautaro er nú þriðji markahæsti leikmaður í sögu Inter
Mynd: EPA
Það er kominn meistarabragur á Inter sem vann 5-0 stórsigur á Sassuolo í Seríu A á Ítalíu í dag, en liðið er nú með átta stiga forystu á toppnum.

Þýski varnarmaðurinn Yann Bisseck reið á vaðið með marki á 11. mínútu og síðan gerði franski sóknarmaðurinn Marcus Thuram annað markið sautján mínútum síðar.

Lautaro Martínez gerði þriðja markið á 50. mínútu og skoraði Manuel Akanji fjórða eftir hornspyrnu. Nemanja Matic, leikmaður Sassuolo, fékk sitt annað gula spjald stuttu síðar og varð vont enn verra fyrir heimamenn.

Luis Henrique rak síðasta smiðshöggið með marki undir lok leiks og Inter með átta stiga forystu á toppnum en Sassuolo í 11. sæti með 29 stig.

Þórir Jóhann Helgason var ónotaður varamaður hjá Lecce sem vann nauman 2-1 sigur á Udinese.

Lameck Banda var hetja Lecce með sigurmarki undir lok venjulegs leiktíma og tryggði liðinu um leið fyrsta sigurinn síðan í byrjun desember.

Lecce er í 17. sæti með 21 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Lecce 2 - 1 Udinese
1-0 Omri Gandelman ('5 )
1-1 Oumar Solet ('26 , víti)
2-1 Lameck Banda ('90 )

Sassuolo 0 - 5 Inter
0-1 Yann Bisseck ('11 )
0-2 Marcus Thuram ('28 )
0-3 Lautaro Martinez ('50 )
0-4 Manuel Akanji ('54 )
0-5 Luis Henrique ('89 )
Rautt spjald: Nemanja Matic, Sassuolo ('54)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 27 11 5 11 34 36 -2 38
10 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
11 Lazio 27 8 10 9 26 27 -1 34
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner