Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
banner
   sun 08. febrúar 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Palmer pirraður á meiðslunum - „Enn að finna út hvernig ég á að takast á við þetta"
Mynd: EPA
Cole Palmer átti frábæran leik þegar Chelsea vann Wolves 3-1 í gær en hann skoraði öll mörk liðsins. Palmer hefur verið í miklum meiðslavandræðum á tímabilinu en hann hefur aðeins komið við sögu í 14 leikjum í úrvalsdeildinni.

„Ég hef aldrei verið meiddur á ferlinum áður. Þetta er nýtt fyrir mér og ég er enn að finna út hvernig ég á að takast á við þetta," sagði Palmer.

„Þetta hefur verið pirrandi, mér líður eins og ég hafi ekki spilað leik alveg heill. Ég hef farið inn í leiki og hugsað: 'Get ég gert ákveðna hluti?' Ofhugsað."

„Starfsliðið hefur staðið sig mjög vel. Ég hef unnið náið með sjúkraþjálfurum daglega. Þeir hafa hjálpað og ég mun komast í gegnum þetta. Ég er ekki hérna til að afsaka mig, ég mun komast í gegnum þetta. Ég veit hvað ég get þegar ég er í formi, ég kemst vonandi á þann stað fljótlega."
Athugasemdir
banner