Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. febrúar 2026 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Þrenna frá Díaz í öruggum sigri Bayern - Kane með tvö vítaspyrnumörk
Luis Díaz var stórkostlegur gegn Hoffenheim
Luis Díaz var stórkostlegur gegn Hoffenheim
Mynd: EPA
Bayern 5 - 1 Hoffenheim
1-0 Harry Kane ('20 , víti)
1-1 Andrej Kramaric ('35 )
2-1 Luis Diaz ('45 )
3-1 Harry Kane ('45 , víti)
4-1 Luis Diaz ('62 )
5-1 Luis Diaz ('89 )
Rautt spjald: Kevin Akpoguma, Hoffenheim ('17)

Þýskalandsmeistarar Bayern München komu sér aftur á skrið og stöðvuðu um leið sigurgöngu Hoffenheim með því að vinna öruggan 5-1 sigur á Allianz-Arena í dag.

Luis Díaz skoraði þrennu og þá skoraði Harry Kane úr tveimur vítaspyrnum.

Kane skoraði fyrra vítið á 20. mínútu með öruggri spyrnu. Markvörðurinn giskaði á rétt horn en spyrnan var föst og hnitmiðuð í vinstra hornið. Kevin Akpoguma, varnarmaður Hoffenheim, fékk rauða spjaldið, fyrir að brjóta á Díaz í teignum.

Andrej Kramaric jafnaði metin eftir hræðileg mistök Manuel Neuer sem átti ömurlega sendingu beint á Fisnik Asllani sem kom boltanum inn á Kramaric sem skoraði.

Kane skoraði úr annarri vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins og þá bætti Díaz við þriðja markinu með skoti úr miðjum teignum áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Díaz skoraði annað mark hálftíma fyrir leikslok af stuttu færi eftir sendingu frá Michael Olise áður en hann fullkomnaði þrennuna undir lok leiks með frábæru skoti fyrir utan teig.

Bayern er á toppnum með 54 stig á meðan Hoffenheim er í 3. sæti með 42 stig og að tapa fyrsta leik sínum síðan í desember.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 25 6 6 13 23 40 -17 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner
banner