Tímabilið hjá Manchester City hefur vægast sagt verið mikil vonbrigði en liðið er úr leik í Meistaradeildinni og á það á hættu að missa af tækifæri á að taka þátt í keppninni á næstu leiktíð.
Liðið er í 4. sæti aðeins einu stigi á undan Chelsea eftir tap gegn Nottingham Forest í dag.
„Við eigum tíu leiki eftir til að komast í Meistaradeildina. Við verðum að vinna leiki til að ná því og við einbeitum okkur að næsta leik," sagði Pep Guardiola eftir tapið í dag.
„Úrvalsdeildin verður betri með hverju árinu. Við vinnum ekki nógu marga leiki í röð til að vera öruggir. Við verðum að gera eitthvað í því, það kemur ekki bara af himnum ofan."
Athugasemdir

